Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2006

Gaman í vinnunni

Ude i naturen

Hæ elsku öll.  Ég er komin á fullt í vinnu aftur, eftir langt og heitt sumarfrí.  Mér finnst æðislegt að vera komin aftur í vinnuna, hitta alla vinnufélagana aftur og hitta börnin.  Búin að sakna þeirra allra.

Annars er allt fínt að frétta af okkur hérna í Tranum.  Við erum að verða búin með nýju veröndina okkar, og ég nýt þess að sitja úti í sólinni eftir hvern vinnudag.  Hef voða lítið að skrifa akkúrat í dag, held ég fari bara í sólbað þangað til ég hef eitthvað að segja af viti.  Annars eru nú komnar nýjar myndir, værsgo´.

kære alle.  Jeg er så glad for at være tilbage på jobbet, ganske vist har jeg haft en dejlig lang sommerferie...men nøgleordet er jo "lang".  Det var herligt at møde arbejdskollegaerne igen, og alle de dejlige børn der går på skolen.  Jeg har verdens bedste job!!

Ellers ikke særlig meget nyt herfra..jo forresten, jeg har lagt nye billeder ind i albummet, så værsgo´

Knuz


Fengum gesti frá Íslandi

Vá, ég er alveg í skýjunum.  Steina, Siggi, Hákon og Haukur komu í dag, það var SVO gaman að sjá þau.  Maður fattar ekki hversu mikið maður saknar vina sinna fyrr en maður sér þá eftir langan tíma...en svona er nú bara það.  Og þau gáfu okkur íslenskt nammi...það verður sko borðað í kvöld!! Þótt maður tími því varla...hihi.  Annars er eitthvað vesen með myndaalbúm í augnablikinu, ég get ekki sett neinar nýjar myndir inn akkúrat núna en ég vona að það lagist bráðum! 

 Kære venner.  Da jeg endnu ikke har oprettet en side på dansk, så vil jeg bare lige skrive et par linjer her.  Vi fik gode venner fra Island på besøg i dag, det var virkelig dejligt.  De boede i Aalborg i nogle år mens de læste, og nu er de flyttet hjem igen...som så mange andre af mine kære venner.. Men sådan er livet.  Det føles jo ikke så langt imellem os da vi har skype og messenger.  Og det skal man bare vænne sig til at bruge.

Jeg skal lige smage på det dejlige islandske slik som jeg fik i dag...vi ses


Halló aftur

Jæja kæru vinir og vandamenn.  Ég er farin að hlakka ansi mikið til að fara að vinna aftur.  Það er auðvitað ágætt að vera í sumarfríi, en ég held bara að ég fái mér sumarvinnu næsta sumar..Neinei, ég get að sjálfsögðu ekki kvartað, búin að hafa það rosa gott.  Annars er ekkert nýtt að frétta af okkur, ég er bara að undirbúa mig undir vinnuna og René er úti að slá grasið...hihi.  Fyrsta skiptið í þrjár vikur ca, vegna hitans er grasið bara byrjað að visna.  Nema svo kom smá regn og allir fara út og slá!!

Annars fengum við nú gesti í gær.  Fríða, Raggi, Sigga Tóta og Hulda Hlíf komu í heimsókn til okkar og það var æðislega gaman hjá okkur.  Við borðuðum svínasteik og fengum ístertu í eftirrétt!! Það var góður dagur.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband